Forsíða

Garðurinn

Skeljar

Gler

Nytjahlutir

Myndir

Upplýsingar

Senda fyrirspurn

Vefsíður

Lopapeysur

 

English version

Home

Bird baths

Scallops

Glass

Accessories

Murals

About artist

Websites

Icelandic sweaters

 

 

 

 

 

Connected-women

Konur.is

 

 

 

Erna Björk Antonsdóttir

Facebook

http://www.mosaicyearbook.com/ArtistIndex.aspx

 

tölvupóstur

 

Sími: 615 1127 - Vinnustofa opin skv. samkomulagi

 

Kynning

Allt frá því ég var unglingur hóf ég að gera myndir úr grjóti og alls kyns efni úr náttúrunni.  Það var Guðmundur Magnússon myndlistarkennari sem opnaði augu mín fyrir myndlistinni og kenndi mér að líta eftir efniviði í umhverfinu til þess að vinna úr.  Fyrir mér opnaðist nýr heimur sem ég heillaðist af og uppáhalds efnið var grjót með öllum sínum litbrigðum og áferð.  Hér til hægri má sjá mynd sem ég gerði á þessum tíma af The Beatles.  Með því að mylja grjótið nógu smátt mátti ná  andlitsdráttum. Guðmundur fór líka með nemendur sína í fjöruferðir í leit að efniviði. Fjaran hefur alla tíð síðan dregið mig að sér í efnisleit ekki síður en árfarvegir, leirur og fjöllin.

Ég lærði aldagamla mósaíktækni  í Ravenna á Ítalíu og nýti mér hana í verkum mínum ásamt nútímalegri tækni.  Námið á Ítalíu opnaði augu mín fyrir möguleikunum á því að nýta mér þessa gömlu tækni í mósaíkgerð í útrás fyrir dálæti mínu á grjótinu hérna heima og er íslenska náttúran er megin viðfangsefnð í mósaikverkunum.  Fjölbreytileiki íslenskrar náttúru hefur upp á svo margt að bjóða, bæði í efnum, litum og fyrirmyndum. 

Takk fyrir að heimsækja vefinn minn.

Erna Björk

 

 
Þessa mynd gerði ég 1965, þá unglingur.  Hún er gerð úr muldu grjóti og bláskel í bakgrunni.